Sveitarstjórnarkosningar
Sveitarstjórnarkosningar
Sveitarstjórnarkosningar fara fram 16. maí 2026.
Rétt til að kjósa á kjörfundi hafa allir sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag og eru á kjörskrá í sveitarfélaginu. Þar sem enginn framboðslisti barst yfirkjörstjórn Langanesbyggðar verða kosningarnar óbundnar.
Í óbundnum kosningum má kjósa alla þá sem eru á kjörskrá í Langanesbyggð, nema þá sem hafa löglega óskað eftir undanþágu frá kjöri.
Eftirtaldir sveitarstjórnarfulltrúar hafa óskað eftir undanþágu frá endurkjöri:
- Halldóra Jóhanna Friðbergsdóttir
- Gunnlaugur Steinarsson
Leiðbeiningar um útfyllingu kjörseðils
Atkvæðaseðill í óbundnum kosningum er auður og því er gott að kjósendur hafi ákveðið fyrirfram hvernig þeir hyggjast kjósa áður en þeir mæta á kjörstað.
Kjósandi má kjósa allt að 7 aðalmenn og 7 varamenn. Heimilt er að hafa með sér minnismiða í kjörklefa. Notkun síma eða myndavéla í kjörklefa er ekki leyfileg.
Á efri hluta kjörseðilsins skrifar kjósandi nöfn aðalmanna ásamt heimilisfangi þeirra, allt að 7 talsins. Röð aðalmanna á seðlinum skiptir ekki máli, hver þeirra fær eitt atkvæði sem aðalmaður.
Á neðri hluta kjörseðilsins skrifar kjósandi nöfn varamanna ásamt heimilisfangi þeirra, í þeirri röð sem óskað er að þeir taki sæti, allt að 7 talsins.
Atkvæði telst gilt ef:
- Aðeins eru tilgreindir aðalmenn (1–7 nöfn).
- Aðeins eru tilgreindir varamenn (1–7 nöfn). Ef fleiri en 7 varamenn eru skráðir teljast aðeins fyrstu 7 nöfnin gild.
- Ekki er skrifað fullt nafn eða heimilisfang, svo framarlega sem augljóst er við hvern er átt.
Atkvæði telst ógilt ef:
- Skrifaðir eru fleiri en 7 aðalmenn.
- Kjörseðillinn er merktur eða auðkenndur með þeim hætti að rekja megi hver kaus.
Aðstoð í kjörklefa
Kjósandi á rétt á aðstoð við atkvæðagreiðslu án þess að þurfa að tilgreina ástæðu. Aðstoðarmaður er bundinn þagnarskyldu.
Kjörstjórnin eða einhver annar sem kjósandi velur getur veitt aðstoð. Ef kjósandi kemur með eigin aðstoðarmann þarf viðkomandi að fylla út sérstakt eyðublað.
Kjörstaðir og opnunartímar eru eftirfarandi:
Þórshöfn - Skrifstofa Langanesbyggðar, Langanesvegi 2.
Opnunartími: 10:00 – 18:00.
Bakkafjörður - Skrifstofa sveitarfélagsins, Skólagötu 5.
Opnunartími: 10:00 – 15:00.
Svalbarðsskóli
Opnunartími: 10:00 – 15:00.
Minnum kjósendur á að hafa með sér persónuskilríki með mynd.
Kosningakaffi
Í tilefni sveitarstjórnarkosninganna býður Langanesbyggð öllum kjósendum og íbúum sveitarfélagsins í kosningakaffi á kjördag, laugardaginn 16. maí, á meðan kjörstaðir eru opnir.
Á Þórshöfn verður boðið upp á kosningakaffi á Holtinu Kitchen Bar og á Bakkafirði verður kosningakaffið haldið í gamla grunnskólanum.
Hvetjum öll til að nýta kosningarétt sinn — hvert atkvæði skiptir máli