Fara í efni

Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi. Mat á umhverfisáhrifum

Fréttir

Öll sveitarfélög á Norðurlandi, samtals 16 sveitarfélög á svæðinu frá Stikuhálsi í vestri að Bakkaheiði í austri, vinna nú að sameiginlegri svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs í samræmi við 6. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, með síðari breytingum.

Tillaga að svæðisáætlun, ásamt umhverfismatsskýrslu í samræmi við III. kafla laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2012, liggur nú fyrir og gefst almenningi sex vikna frestur til að kynna sér tillöguna og umhverfismatsskýrsluna og koma athugasemdum sínum á framfæri áður en áætlunin er afgreidd af viðkomandi sveitarstjórnum.

Hægt er að kynna sér tillöguna á vefsíðum Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi, þ.e. á https://www.ssnv.is og https://www.ssne.is, sem og á vefsíðu Umhverfisráðgjafar Íslands ehf. (www.environice.is). Skriflegar ábendingar og athugasemdir skulu berast í síðasta lagi 31. mars 2023 á netfangið stefan@environice.is eða í pósti á heimilisfangið:

Umhverfisráðgjöf Íslands ehf.
v/ Svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi
Hvanneyrargötu 3
311 Hvanneyri