Fara í efni

Sumarstörf í Þjónustumiðstöð Langanesbyggðar 2026

Fréttir

Sumarstarfsmenn í Þjónustumiðstöð

Starfsmenn óskast til fjölbreyttra verkefna í sumarvinnu við Þjónustumiðstöð Langanesbyggðar frá og með 26. maí n.k. til 14. ágúst.

Flokkstjóri Vinnuskóla

Auglýst er eftir flokksstjóra við vinnuskóla Langanesbyggðar í sumar frá 5. júní n.k. til 31. júlí.
Starfið felst í því að skipuleggja og stýra vinnu unglinga. Sjá um verkskráningar og vinnutengd námskeið í samvinnu við forstöðumann Þjónustumiðstöðvar. Leitað er eftir opnum og drífandi einsaklingi sem á gott með að vinna með ungu fólki. Umsækjandi þarf að vera orðinn 20 ára eða eldri og hafa ökupróf.

Tjaldsvæðið á Þórshöfn

Óskað er eftir áhugasömum aðila til að þjónusta tjaldsvæðið á Þórshöfn sumarið 2026, frá 20. maí til 31. ágúst.Starfið felst í því að hafa eftirlit með tjaldsvæðinu, innheimtu, þrifum o.fl. tilfallandi.

Umsóknareyðublöð eru á skrifstofu Langanesbyggðar, Langanesvegi 2, Þórshöfn en einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublað hér.
Umsóknarfrestur er til og með  24. apríl nk. Umsóknir sendist á netfangið: thorri@langanesbyggd.is
Nánari upplýsingar er hægt að fá á skrifstofu Langanesbyggðar í síma 468-1220 eða hjá Þorra, Forstöðumanni Þjónustumiðstöðvar, í síma 846-4022.