Fara í efni

Sumarstörf í Þjónustumiðstöð Langanesbyggðar

Fréttir

Sumarstarfsmenn í Þjónustumiðstöð
Auglýst er eftir sumarstarfsmönnum í Þjónustumiðstöð Langanesbyggðar frá og með 1. júní.2023.
Kostur ef umsækjendur hafa vinnuvélaréttindi.

Flokkstjóri Vinnuskóla
Auglýst er eftir flokksstjóra við vinnuskóla Langanesbyggðar í sumar og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en 15. maí n.k.
Starfið felst í því að skipuleggja og stýra vinnu unglinga. Sjá um verkskráningar og vinnutengd námskeið í samvinnu við forstöðumann Þjónustumiðstöðvar. Leitað er eftir opnum og drífandi einsaklingi sem á gott með að vinna með ungu fólki. Umsækjandi þarf að vera orðinn 20 ára eða eldri og hafa ökupróf.

Umsóknarfrestur er til og með 2. maí n.k.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Langanesbyggðar eða á netfangið langanesbyggd@langanesbyggd.is
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar í síma 863 5198 / jonrunar@langanesbyggd.is

Umsóknarform má nálgast hér