Fara í efni

Sumarafleysingar á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Nausti

Fréttir

Hjúkrunarheimilið Naust óskar eftir sumarstarfsfólki í aðhlynningu.

Naust er hjúkrunar- og dvalarheimili með rými fyrir 14 íbúa.
Við leggjum áherslu á að hafa notalegt og heimilislegt andrúmsloft.

Hæfniskröfur:

  • Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 18 ára aldri
  • Jákvæðni og vinnusemi
  • Sjálfstæði og stundvísi
  • Góð færni í samskiptum og áhugi á að starfa með eldra fólki
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði

Umsóknarfrestur er til og með 2. maí 2023

Umsóknum skal skilað á netfangið naust@langanesbyggd.is

Nánari upplýsingar veitir Herdís Eik Gunnarsdóttir, forstjóri í síma 468-1322 eða á netfangið naust@langanesbyggd.is