Fara í efni

Sumarafleysing í heimaþjónustu í Langanesbyggð

Fréttir

Starfsmann vantar í afleysingu í heimaþjónustuna í Langanesbyggð tímabilið 3. júlí – 11. ágúst n.k.
Starfið felst í því að starfa á heimilum aldraðra einstaklinga, öryrkja og/eða fatlaðra. Auk venjubundinna heimilisverka og ræstinga er gert ráð fyrir innkaupaferðum fyrir skjólstæðing svo og félagslegum stuðningi að einhverju leyti.
Viðkomandi þarf að hafa ríka samskipta- og samstarfshæfni og hafa gaman að því að umgangast eldra fólk. Gerð er krafa um heiðarleika, dugnað, stundvísi og góða framkomu.

Umsóknum skal skilað á netfangið naust@langanesbyggd.is

Umsóknarfrestur er til og með 19. maí.

Nánari upplýsingar gefur Herdís Eik Gunnarsdóttir, forstjóri Nausts í síma 468-1322 eða á netfangið naust@langanesbyggd.is