Fara í efni

Styrkir til verkefna vegna Betri Bakkafjarðar

Fréttir
Auglýst er eftir umsóknum um styrki til verkefna í tengslum við verkefnið „Betri Bakkafjörður“
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrk úr sjóðum verkefnisins Betri Bakkafjörður fyrir árið 2020. Frestur til að sækja um er til og með föstudagsins 17. apríl 2020.
Meginmarkmið verkefnisins Betri Bakkafjörður eru eftirfarandi:
 Sterkir samfélagsinnviðir
 Öflugt atvinnulíf
 Aðlandi ímynd Bakkafjarðar
 Skapandi mannlíf
Væntanlegar umsóknir þurfa að taka mið af þessum markmiðum.
Á vef Byggðastofnunar (www.byggdastofnun.is) eru nánari reglur um styrkveitingar. Á vef Atvinnurþróunarfélags Þingeyinga (www.atthing.is) má nálgast umsóknareyðublað sem umsækjendur um styrk skulu notast við en þar má einnig finna yfirlit yfir áherslur verkefnisins.
Athugið að ekki er krafist mótframlags frá umsækjanda. Það styrkir umsókn ef verkefnið laðar fram fjármuni og krafta aðstandenda verkefnisins og samstarfsaðila. Samstarf aðila sem að jafnaði starfa ekki saman styrkir umsóknina.
Umsækjendur er hvattir til að lesa ofangreindar leiðbeiningar og leita sér aðstoðar hjá verkefnisstjóra. Vönduð umsókn sem styður við framtíðarsýn og meginmarkmið verkefnisins er líklegri til árangurs.
 
Umsóknareyðublað má fá hér og Úthlutunarreglurnar hér.
 
Nánari upplýsingar og ráðgjöf veitir Ólafur Áki Ragnarsson verkefnisstjóri í síma 893-6434 eða á netfanginu olafur@ssne.is
Betri Bakkafjörður - Brothættar byggðir - Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norrlandi eystra - Langanesbyggð