Fara í efni

Stóri plokkdagurinn 30. apríl

Fréttir

Stóri plokkdagurinn verður haldin sunnudaginn 30. apríl næst komandi

Það er í sjötta sinn sem dagurinn er haldin hátíðlegur. Plokk á Íslandi heldur út virkum hópi á samfélagsmiðinum Facebook þar sem átta þúsund meðlimir deila myndum af sínu plokki og sinni útivist.

Það er ótrúlega magnað að rúmlega átta þúsund manns eigi þetta áhugamál. Við erum að sjálfsögðu með meistaradeild sem æfir daglega og keppir allt árið um kring en við erum líka með áhugafólk sem grípur í töngina á vorin og haustin eða sér um sitt svæði allt árið um kring.

Stóri Plokkdagurinn er dagur okkar allra. Allir mega skipuleggja viðburði í sínu nær samfélagi og hvetja aðra til þess sama. Hvetjum sveitarfélögin okkar til að taka þátt, hvetjum vinnustaðinn okkar til að taka þátt, vinnufélaga, skólafélaga og nágrannana í götunni.

Skipuleggjum minni viðburði þar sem við komum saman og plokkum svæði í nær samfélaginu okkar þar sem plast og pappi safnast saman í rokinu allann veturinn. Ef við áttum okkur á því hvaðan ruslið er að koma er ekki úr vegi að láta viðkomandi ábyrgðmenn vita. Ekki bara láta vita af því heldur biðja viðkomandi að ganga betur frá ruslafötum eða gámum því ósjaldan er uppruni rusl óásættanlegur frágangur á ruslaílátum.

Núna þegar um það bil sex vikur eru til stefnu langar mig að hvetja ykkur öll að velta því fyrir ykkur hvernig hægt er að nýta daginn í ykkar nágrenni. Er sveitarfélagið ykkar að skipuleggja eitthvað, getur þú skipulagt eitthvað.
Merki Stóra plokkdagsins er inn á plokk.is þar sem allir geta sótt það og notað það til að merkja sína viburði með.

Þau ykkar sem hafið áhuga á enn meira samstarfi getið sent okkur fyrirspurn á plokk@plokk.is

Plokk er góð útivera, góð samvera og allir geta tekið þátt. Þetta er okkar umhverfi, þetta er okkar framtíð. Vertu með á Stóra plokkdaginn

PLOKKUM

Frábær hreyfing fyrir alla aldurshópa
Einstaklingsmiðað
Hver á sínum hraða
Hver ræður sínum tíma
Frábært fyrir umhverfið
Fegrar nærsamfélagið
Öðrum góð fyrirmynd

PLOKKTRIXIN Í BÓKINNI

Finna sér svæði til að plokka á og hvetja fjölskylduna til að taka þátt.
Stofna viðburð eða tengja sig inn á stofnaðan viðburð.
Útvega sér ruslapoka, hanska og plokktöng.
Klæða sig eftir aðstæðum.
Virða samkomubannið og gæta að tveggja metra reglunni.
Koma afrakstrinum á viðeigandi stofnun.
Hringja eða senda tölvupóst á sveitarfélagið sitt og láta sækja ef magnið er mikið.
Gæta fyllstu varúðar og brýna fyrir börnum að láta nálar og aðra hættulega hluti vera, en tilkynna til foreldra eða umsjónarmanna svo mögulegt sé að fjarlægja þá.