Fara í efni

Stóri Plokkdagurinn 24. apríl

Fréttir
Merki stóra Plokkdagsins
Merki stóra Plokkdagsins

Alþjóðlegi Plokkdagurinn er haldinn hátíðlegur víða um land, laugardaginn 24. apríl. Það geta allir tekið sér poka í hönd og farið í göngutúr í sínu sveitarfélagi og plokkað upp rusl í leiðinni. 

Plokk á Íslandi er hópur einstaklinga sem bera virðingu fyrir umhverfinu og hafa það sem áhugamál að fara um illa hirt svæði og þrífa þar upp plast, pappa og annað rusl sem fallið hefur til frá íbúum, framkvæmdum eða þungaflutningum innan marka sveitarfélaga, á girðingum og í skurðum á víðavangi.

Hópurinn á sitt eigið svæði á Facebook og telja meðlimir þess tæplega 7000 manns. Þar deila meðlimir sigrum og áskorunum í umhverfismálum og þar hvetja meðlimir hvor aðra til dáða og birta myndir af rusli sem tekið hefur verið úr náttúrunni og fært á viðeigandi stofnanir.
Plokk á Íslandi árlega fyrir Stóra Plokkdeginum í lok apríl og hefur gert það frá árinu 2018. Mörg hundruð stórir ruslapokar skila sér á rétta staði og furðulegustu hlutir finnast í náttúrunni. Forseti Íslands, forsetafrúin og umhverfissáðaherra hafa tekið þátt í deginum frá 2019 enda annálaðir plokkarar öll.

GÓÐ PLOKK RÁÐ

1. Finna sér svæði til að plokka á og hvetja fjölskylduna til að taka þátt.

2. Hvetja aðra til að vera með

3. Útvega sér ruslapoka, hanska og/eða plokktöng.

4. Klæða sig eftir aðstæðum.

5. Koma afrakstrinum á endurvinnslustöð eða í öruggar tunnur eða gáma sem ekki fjúka eða fýkur uppúr.

6. Gæta fyllstu varúðar og brýna fyrir börnum að láta nálar og aðra hættulega hluti vera, en tilkynna til lögreglu svo mögulegt sé að fjarlægja þá.

7. Munum að ALLT plokk skiptir máli. Þó þú takir bara einn tóman plast poka uppúr jörðinni eða einnota hanska úr rjóðri eða runna þá ertu að gera gera gagn og það skiptir máli !

9. Það eru um 7000 félagar í Plokk á Íslandi og ef allir taka einn einnota kaffibolla upp úr jörðinni á dag þá eru það 7000 bollar á dag sem gera 210.000 bollar á mánuði og já … það eru rúmlega 2.5 milljón bolla á ári.