Fara í efni

Störf í boði í Þjónustumiðstöð 2020

Fréttir

Sumarstarfsmenn

Auglýst er eftir sumarstarfsmönnum í Þjónustumiðstöð Langanesbyggðar í sumar, frá og með miðvikudeginum 3. júní 2020.

Vinnuvélaréttindi eru kostur. Umsækjendur þurfa að vera fæddir 2003 eða fyrr.

Flokksstjóri Vinnuskóla

Auglýst er eftir flokksstjóra við vinnuskóla Langanesbyggðar í sumar, frá og með miðvikudeginum 3. júní 2020.
Leitað er eftir opnum og drífandi einstaklingi sem á gott með að vinna með ungu fólki.

Starfið felst í því að skipuleggja og stýra vinnu unglinga og sjá um verkskráningar og vinnutengd námskeið í samvinnu við forstöðumann Þjónustumiðstöðvar. Umsækjendur þurfa að vera 20 ára eða eldri og hafa ökupróf, góða tölvukunnáttu og mikill kostur að hafa framhaldsskólamenntun.
Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 11. maí n.k. og skal
umsóknum skilað á skrifstofu Langanesbyggðar eða á netfangið langanesbyggd@langanesbyggd.is 
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar í síma 863 5198.

Vinnuskóli Langanesbyggðar

Vinnuskóli Langanesbyggðar hefst þriðjudaginn 2. júní og lýkur föstudaginn 24. júlí. Unnið er alla virka daga frá kl. 08:00 til kl. 16:00. Vinnuskólinn er fyrir unglinga fædda árin 2004, 2005 og 2006 og með lögheimili í Langanesbyggð.
Umsóknareyðublöð eru á skrifstofu Langanesbyggðar og er umsóknarfrestur til og með 25. maí nk.

Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá forstöðumanni Þjónustumiðstöðvar Langanesbyggðar í síma 863-5198 eða með tölvupósti á langanesbyggd@langanesbyggd.is