Fara í efni

Starfsmaður óskast í heimaþjónustu á Bakkafirði

Fréttir

Starfsmann vantar í heimaþjónustu á Bakkafirði frá og með 1. maí nk. Um er að ræða hlutastarf og sveigjanleika í vinnutíma.

Starfið felst í því að starfa á heimilum aldraðra einstaklinga, öryrkja og/eða fatlaðra. Auk venjubundinna heimilisverka og ræstinga er gert ráð fyrir innkaupaferðum fyrir skjólstæðing svo og félagslegum stuðningi að einhverju leyti.

Viðkomandi þarf að hafa ríka samskipta- og samstarfshæfni og hafa gaman að því að umgangast eldra fólk. Gerð er krafa um heiðarleika, dugnað, stundvísi og góða framkomu.

Nánari upplýsingar gefur Sólrún Arney Siggeirsdóttir, hjúkrunarforstjóri í síma 468-1322 eða á netfangið naust@langanesbyggd.is