Fara í efni

Starfsmaður óskast í afleysingu

Fréttir
Starfsmaður óskast
Starfsmaður óskast

Starfsmaður óskast í afleysingu í heimaþjónustu á Þórshöfn.

 

Starfsmann vantar í afleysingu í heimaþjónustuna á Þórshöfn tímabilið 24. ágúst – 18 september n.k. Um er að ræða 30% vinnu.
Starfið felst í því að starfa á heimilum aldraðra einstaklinga, öryrkja og/eða fatlaðra. Auk venjubundinna heimilisverka og ræstinga er gert ráð fyrir innkaupaferðum fyrir skjólstæðing svo og félagslegum stuðningi að einhverju leyti.
Viðkomandi þarf að hafa ríka samskipta- og samstarfshæfni og hafa gaman að því að umgangast eldra fólk. Gerð er krafa um heiðarleika, dugnað, stundvísi og góða framkomu.

Nánari upplýsingar gefur Sólrún Arney Siggeirsdóttir, hjúkrunarforstjóri í síma 468-1322 eða á netfangið naust@langanesbyggd.is