Fara í efni

Starfsmaður í Þjónustumiðstöð

Fréttir

Langanesbyggð óskar eftir að ráða starfsmann í Þjónustumiðstöð sveitarfélagsins með hafnarvörslu á Bakkafirði sem meginstarf.

 Starfssvið

  • Annast almenna starfsemi hafnarinnar á Bakkafirði og þjónustu við viðskiptavini hennar
  • Vigtun sjávarafla og skráningu upplýsinga um löndun
  • Eftirlit með hafnarsvæðum, umferð um þau og umgengni og daglegt viðhald hafnarmannvirkja og búnaðar hafnarinnar
  • Öryggismál hafnarinnar, mengunarvarnir og hafnarvernd

  Hafnarvörður er starfsmaður þjónustumiðstöðvar Langanesbyggðar og vinnur önnur tilfallandi störf eftir því sem við á hverju sinni. Hvort sem er á Þórshöfn eða Bakkafirði.

 Hæfniskröfur

  • 30 tonna siglingaréttindi pungapróf er kostur
  • Grunnþekking á tölvuvinnslu
  • Réttindi á hafnarvog er kostur
  • Góð íslenskukunnátta
  • Enskukunnátta er kostur
  • Iðnmenntun er kostur

 Viðkomandi þarf að hafa ríka þjónustulund, hafa frumkvæði og vera ávallt íbúum sveitarfélagsins og viðskiptavinum hafnarinnar lausnamiðaður og hjálpfús.

 Búseta á Bakkafirði er kostur.

 Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

  Nánari upplýsingar veitir:

Jón Rúnar Jónsson, forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar Langanesbyggðar

fs. 863-5198 netfang: jonrunar@langanesbyggd.is

 Umsókn um starfið skal senda í netfangið jonrunar@langanesbyggd.is  og skal henni fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

 Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember 2020, æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega.

 Við hlökkum til að heyra frá þér!