Fara í efni

Starf sveitarstjóra laust til umsóknar

Fréttir

Starf sveitarstjóra laust til umsóknar
Langanesbyggð auglýsir starf sveitarstjóra laust til umsóknar. Leitað er að öflugum og metnaðarfullum leiðtoga sem hefur áhuga á að efla sveitarfélagið, styrkja þjónustu við íbúa og vinna náið með sveitarstjórn, starfsfólki og samfélaginu. Sveitarstjóri leiðir daglegan rekstur sveitarfélagsins og gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu og þróun samfélagsins til framtíðar.

Helstu verkefni og ábyrgð
 - Ber ábyrgð á daglegum rekstri sveitarfélagsins og framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar
 - Ber ábyrgð á stjórnsýslu, fjárhagsáætlun, áætlanagerð og eftirfylgni
 - Yfirumsjón með mannauðs- og starfsmannamálum
 - Vinnur náið með sveitarstjórn og nefndum, undirbýr fundi og veitir upplýsingar
 - Samskipti við íbúa, fyrirtæki, stofnanir og aðra samstarfsaðila
 - Gætir hagsmuna sveitarfélagsins út á við og vinnur að stefnumótun og þróun þess

Hæfniskröfur
 - Menntun sem nýtist í starfi
 - Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu og sveitarstjórnarmálum
 - Reynsla af stjórnun, rekstri og fjármálum
 - Framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfni
 - Frumkvæði, metnaður og lausnamiðuð vinnubrögð
 - Mjög góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti

Umsóknarfrestur er til og með 24. júní 2026.
Umsóknir skulu sendar með tölvupósti á langanesbyggd@langanesbyggd.is
Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni til starfsins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar veita:
Jóhann Hafberg Jónasson oddviti – sími 772 2284 - johannj@langanesbyggd.is.
Sigurður Ragnar Kristinsson formaður byggðaráðs – sími 893 2925 - sigurdurk@langanesbyggd.is

Sveitarstjórn Langanesbyggðar