Fara í efni

Starf í heimaþjónustu í Langanesbyggð.

Fréttir

Starfsmann vantar í heimaþjónustu í Langanesbyggð .

Starfið felst í því að starfa á heimilum aldraðra einstaklinga, öryrkja og/eða fatlaðra. Auk venjubundinna heimilisverka og ræstinga er gert ráð fyrir innkaupaferðum fyrir skjólstæðing svo og félagslegum stuðningi að einhverju leyti.

Viðkomandi þarf að hafa ríka samskipta- og samstarfshæfni og hafa gaman að því að umgangast eldra fólk. Gerð er krafa um heiðarleika, dugnað, stundvísi og góða framkomu.

Umsóknum skal skilað á netfangið dvalarheimilid.naust@langanesbyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 31.08.2025

Nánari upplýsingar gefur Silvía Jónsdóttir, forstjóri í síma 468-1322/691-7949 eða á netfangið dvalarheimilid.naust@langanesbyggd.is