Staða og áform í dag í viðgerð og endurbyggingu grunnskólans.
Varðandi ástand skólans eftir að ljóst var að mygla greinist í dúk, þá var ráðist í að rífa dúk af öllu skólahúsnæðinu ásamt því að gera áætlun um mögulega viðgerð á A og B hluta. Talið er að ástæður þess að mygla kom hafi verið nokkrar en hinsvegar er ekkert hægt að fullyrða um frumorsakir. Enginn raki hefur fundist í gólfplötu eftir ítrekaðar mælingar. Í B álmu (millivegg á milli skólastofa) komu í ljós myglu og rakaskemmdir eftir þakleka.
Fljótlega eftir að málið kom upp var ákveðið að stofna vinnuhóp til að kanna þörfina á viðgerð og/eða að byggja við skólann og koma þannig fyrir bókasafni, raungreinastofu, kennslueldhúsi, tónlistarskóla, og frístund, sem skapar heildstæðara, hagkvæmara og nútímalegra náms- og starfsumhverfi fyrir nemendur og starfsfólk.
Að lokum var ákveðið að halda í norðurhluta skólans (A og B) og rífa C álmu þar sem minnst var búið að gera við hana frá seinustu framkvæmdum. Ennfremur var ákveðið að selja hluta D sem nú þegar hefur verið seldur.
Staðan varðandi C álmu var að upp kom fúkkalykt sem varð til þess að ákveðið var að fara i frekari sýna töku. Í dag er staðan sú að búið er að rífa að mestu allt úr C álmu og líklegt talið að lyktin hafi komið úr borðaklæðningu í lofti og ljóst að rakaskemmdir og mygla er í hluta á þaki svo skipta þyrfti um allt þakið ef farið væri út í viðgerðir. Einnig eru gluggar komnir á tíma. Núna hefur verið ákveðið að rífa C álmu og byggja við A og B hluta svokallaða T byggingu eins og sýnt er á myndum.
Nú er unnið er að viðgerð og viðhaldi á A og B hluta sem ákveðið var að halda og vonast til að því ljúki í haust. Verið er að einangra sökkla og leggja nýjar drenlagnir. Einnig er verið að mála A og B hluta ásamt breytingum á anddyri þar sem að bráðabirgða aðstaða starfsfólks verður. Þá er stefnt að því að fara fljótlega í viðgerðir á hluta af þaki á B álmu.
Í austurálmu, (B álmu) sem tilheyrt hefur yngsta stigi, hafa verið settir gólfsíðir gluggar úr kennslustofum fram á gang og á milli bekkjastofu og skiptistofu sem liggur við hlið bekkjarstofu. Þetta eykur sýnileika og stuðlar að auknu öryggi og betri yfirsýn innan skólans ásamt því að gera vinnu- og námsaðstæður bjartari og notalegri. Einnig hafa verið gerðar umbætur á salernisaðstöðu. Nú verður gengið inn á hvert salerni fyrir sig. Aðstaðan samanstendur af þremur minni salernum auk eins stærra og hefur nú í fyrsta sinn verið komið upp fullnægjandi hjólastólaaðgengi í skólanum.
Smíðastofu og textílstofu verður ekki breytt þar sem ánægja hefur verið með þá hönnun frá árinu 2016. Til að byrja með verður textílstofan nýtt sem bekkjarstofa, líkt og það rými sem síðar er ætlað að verða raungreinastofa, þar til full uppbygging og nýting húsnæðisins verður komin til framkvæmda. Í haust mun yngsta stig og miðstig flytja yfir í þann helming sem verið er að laga, elsta stig verður í Kistufelli og frístund í Þórsveri (þar sem yngsta stigið er núna)
Vilji og metnaður er hjá sveitarstjórn Langanesbyggðar til að skapa sem besta aðstöðu fyrir nemendur og starfsfólk, þar sem skólabyggingin styður við öflugt nám, vellíðan og nútímalegt starfsumhverfi.



