Snyrtilegasta býlið í Langanesbyggð
14.05.2025
Fréttir
Undanfarin tvö ár hefur skipulags- og umhverfisnefnd verðlaunað fyrir snyrtilegustu lóðina við íbúðarhús og snyrtilegustu lóðina við fyrirtæki.
Í ár hefur skipulags- og umhverfisnefnd ákveðið að verðlauna snyrtilegasta býlið í dreifbýli Langanesbyggðar fyrir árið 2025.
Óskað er eftir ábendingum frá íbúum sveitarfélagsins um það býli sem að þeirra mati er það snyrtilegasta í sveitarfélaginu.
Frestur til að skila inn tillögum er til 1. ágúst. Tillögur er hægt að senda á netfangið langanesbyggd@langanesbyggd.is
Skipulags- og umhverfisnefnd