Fara í efni

Snyrtilegasta athafna- og/eða iðnaðarlóðin í Langanesbyggð

Fréttir

Skipulags- og umhverfisnefnd hefur ákveðið að verðlauna snyrtilegustu athafna- og/eða iðnaðarlóðina í Langanesbyggð árið 2024. 
Óskað er eftir ábendingum frá íbúum sveitarfélagsins um lóð sem að þeirra mati er sú snyrtilegasta í sveitarfélaginu.
Frestur til að skila inn tillögum er til 7. ágúst. Tillögur er hægt að senda á netfangið langanesbyggd@langanesbyggd.is

Skipulags- og umhverfisnefnd