Fara í efni

Smáframleiðendur matvæla sameinast í Matsjánni

Fréttir

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Matsjánna, verkefni sem er ætlað smáframleiðendum matvæla sem vilja efla leiðtogafærni sína, öðlast aukna getu til að þróa vörur og þjónustu og efla tengslanetið sitt í greininni. Matsjáin fer fram á 14 vikna tímabili frá 6. janúar til 7. apríl og samanstendur af sjö lotum með heimafundum/jafningjaráðgjöf, fræðslu og erindum, verkefnavinnu og ráðgjöf. Verkefnið fer fram á netinu þvert á landið og lýkur með veglegri uppskeruhátíð þar sem þátttakendur hittast í raunheimi. 

Matsjáin mun snerta á helstu áskorunum sem smáframleiðendur matvæla standa frammi fyrir í dag en endanleg dagskrá mun vera unnin í samstarfi við þátttakendur sem geta með kosningu haft áhrif á þá fræðslu sem boðið verður upp á. Listi yfir möguleg umfjöllunarefni er að finna inn í umsóknarforminu hér. Meðal ávinninga af þátttöku má nefna að efla fókus í starfsemi og framleiðsluferli, öðlast ný verkfæri og þekkingu, aukin leiðtogafærni, koma auga á ný viðskiptatækifæri og aukið tengslanet og mögulegt samstarf meðal þátttakenda. 

Umsóknarfrestur er til 20. nóvember og verkefnið hefst með kynningarfundi 2. desember kl. 15:00. Matsjáin hefst svo formlega 6. janúar og lýkur 7. apríl. Þátttökugjald í Matsjánni er kr. 30.000, innifalið er gjaldfrjáls aðild að SSFM fyrir árið 2022. Þátttökugjald í Matsjánni fyrir núverandi félagsmenn SSFM er 15.000 kr. Umsóknina má nálgast hér: Umsókn í Matsjána 2022

Frekari upplýsingar veitir:
Anna Lind Björnsdóttir,verkefnastjóri SSNE / annalind@ssne.is / 848-7440