Fara í efni

Skoðanakönnun um nafn og byggðamerki nýs sveitarfélags

Fréttir

Byggðaráð sameinaðs sveitarfélags Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps ákvað á fundi sínum 30. júní síðastliðinn að halda rafræna skoðanakönnun um nýtt nafn og byggðamerki sameinaðs sveitarfélags.

Allir íbúar sameinaðs sveitarfélags 16 ára og eldri munu geta tekið þátt í rafrænni skoðanakönnun í gegnum vefsíðuna Betra Ísland sem mörg sveitarfélög eru aðilar að og mikið er notuð í ýmsum könnunum og kosningum. Til þess að taka þátt þurfa íbúar að skrá sig inn í gegnum rafræn skilríki eða með íslykli. Ef íbúar eru ekki með rafræn skilríki eða lenda í vandræðum með könnunina er hægt að hafa samband við skrifstofu sveitarfélagsins á opnunartíma til að fá upplýsingar um hvernig hægt er að taka þátt. Skoðanakönnunin hefst miðvikudaginn 7. júlí kl 14:00 og henni mun ljúka 18. júlí nk kl 16:00. Sveitarstjórn mun taka mið af niðurstöðum úr þessum könnunum við ákvörðun um nýtt heiti og nýtt byggðamerki fyrir sameinað sveitarfélag.

Hlekkur inná skoðanakönnunina má finna efst hér á heimasíðu Langanesbyggðar en einnig með því að ýta á þennan hlekk hér. 

Í könnuninni verður hægt að velja um þau þrjú nöfn sem Örnefnastofnun lagði til að kæmu til greina eftir undirbúningsvinnuna sem farið var í við sameiningarvinnuna fyrr á árinu. Nöfnin eru:
1) Langanesbyggð
2) Langanesþing
3) Norðausturbyggð

Í könnuninni verður hægt að velja um tvö byggðamerki sem höfundur merkis Langanesbyggðar, Steinbjörn Logason, lagði til að notuð yrðu. Með honum kom Halldóra Jóhanna Friðbergsdóttir sveitarstjórnarfulltrúi sameinaðs sveitarfélags að valinu.

Nánari upplýsingar um skoðanakönnunina eru gefnar á skrifstofu Langanesbyggðar.