Fara í efni

Skilaboð frá Slökkviliði LAnganesbyggðar

Fréttir
Eftirfarandi eru skilaboð til allra frá Slökkviliði Langanesbyggðar:

Eftirfarandi eru skilaboð til allra frá Slökkviliði Langanesbyggðar:

Kæru íbúar Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps

Nú fer að líða að jólum og þá er lag að yfirfara brunavarnirnar á heimilum okkar, því þar eru jú mestu verðmæti landsins, þ.e.a.s. börnin okkar og við sjálf.

Hér eru svo nokkrir punktar sem við þurfum að yfirfara:

  • REYKSKYNJARI  Í LAGI!!!
  • Skipta um rafhlöður í öllum reykskynjurum á hverju ári.
  • Endurnýja  reykskynjara  á 10 ára fresti.
  • Prófa alla reykskynjara minnst tvisvar á ári
  • Hafa slökkvitæki sem næst útihurð á áberandi stað
  • Minnst 9 lítra léttvatnstæki eða 6 kg dufttæki.
  • Eldvarnarteppi í öll eldhús. Skoða teppin árlega.

Að lokum viljum við óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

                                                   Slökkvilið  Langanesbyggðar,