Sjávarblámi
23.05.2025
Fréttir
Sýningin Sjávarblámi verður opnuð formlega föstudaginn 20. júní kl. 16:00 í Hvalasafninu á Húsavík. Í tilefni opnunarinnar verður einnig útgáfuhóf fyrir nýja bók sem gefin er út í tengslum við sýninguna. Í bókina eru greinar eftir listamennina, sýningarstjóra svo og Filipu Ramos, Ævar Petersen, Marianne Rasmussen, Pari Stave og Evu Björk Káradóttur.
Sýningin fjallar á listrænan hátt um samband manna og hvala, ferðalög hvalanna við Íslandsstrendur, og hvernig við horfum á þessi stórbrotna dýr í sögulegu og samtímalegu samhengi. Með ljósmyndum, hljóði og innsetningum enduróma verkin líkamlega nærveru hvala og mikilvægi þeirra í vistkerfi sjávarins.
Allir velkomnir, hlökkum til að sjá ykkur.
Léttar veitingar í boði.