Fara í efni

Síðasta vinnustofan fyrir Uppbyggingarsjóð - rafræn vinnustofa

Fréttir

 

Linkur á vinnustofuna:

https://fb.me/e/1QsM6d3eo

Á fimmtudaginn kl. 17:00-18:00 verður rafræn vinnustofa varðandi helstu atriði í ferli umsókna í Uppbyggingarsjóð og færi gefið á að spyrja spurninga sem brenna á þeim sem eru að móta sín verkefni og skrifa umsóknir. Vinnustofan stendur yfir í um eina klukkustund.
Best er að skrá þátttöku inn á facebook viðburðinn til að fá áminningu eða þá skrá sig í gegnum heimasíðu SSNE og fá áminningarpóst degi fyrir vinnustofuna.
Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra auglýsir eftir umsóknum fyrir árið 2022. Umsóknarfrestur er til kl. 13:00 miðvikudaginn 10. nóvember 2021.

Veittir eru styrkir í eftirfarandi þremur flokkum:

- Verkefnastyrkir á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar
- Verkefnastyrkir á sviði menningar
- Stofn- og rekstrarstyrkir á sviði menningar

Í takt við sóknaráætlun landshlutans verður lögð sérstök áhersla á verkefni sem snúa að umhverfismálum.

Viltu lesa nánar um uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra? https://www.ssne.is/.../soknaraaetlun-1/uppbyggingarsjodur