Fara í efni

Sameining samþykkt í báðum sveitarfélögum

Fréttir

Tillaga að sameiningu Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps var samþykkt í kosningum í dag. Í Langanesbyggð kusu 204 af 344 sem voru á kjörskrá eða 59,3%. Já sögðu 148 eða 73% en nei sögðu 53 eða 26% og 3 seðlar voru auðir eða 1%.
Í Svalbarðshreppi voru 70 á kjörskrá og af þeim kustu 52 eða 74%. Já sögðu 35 eða 67% og nei sögðu 17 eða 33%.