Fara í efni

Rekstrarstjóri Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Nausts

Fréttir

Rekstrarstjóri óskast til starfa á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Nausti á Þórshöfn. Leitað er að metnaðarfullum, hugmyndaríkum og kraftmiklum einstaklingi til að takast á við ögrandi og spennandi verkefni.

 Hlutverk rekstrarstjóra eru meðal annars:

  • Að bera ábyrgð á rekstri heimilisins ásamt forstöðumanni hjúkrunar
  • Að annast starfsmannamál í samvinnu við forstöðumann
  • Að hafa umsjón með skráningu og gagnaskilum
  • Að gera fjárhags- og rekstraráætlanir
  • Að sjá um kostnaðar- og innkaupaeftirlit

 Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af stofnanarekstri og starfsmannahaldi
  • Menntun á heilbrigðissviði æskileg
  • Menntun á sviði rekstrar æskileg
  • Gott vald á íslensku í töluðu og rituðu máli
  • Sjálfstæð vinnubrögð, talnaskilningur og rökfesta

 Umsóknarfrestur er til og með 30. júní nk. Umsóknum skal skilað til sveitarstjóra elias@langanesbyggd.is, sem jafnframt veitir einnig frekari upplýsingar.

 Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Miðað er við 30% starfshlutfall og er vinnutími sveigjanlegur. Gert er ráð fyrir að viðkomandi geti hafið störf fljótlega, helst 1. ágúst nk. Greitt er skv. kjarasamningum.