Reglulegum sveitarstjórnarfundi 21. ágúst frestað – aukafundur haldinn 28. ágúst
21.08.2026
Fréttir
Reglulegur fundur sveitarstjórnar sem fyrirhugaður var 21. ágúst 2026 hefur verið felldur niður.
Þess í stað verður haldinn aukafundur sveitarstjórnar 28. ágúst.
Þessi ákvörðun var tekin í ljósi þess að niðurstöður úttektar á rekstri sveitarfélagsins eru væntanlegar 26. ágúst. Með því að halda aukafund 28. ágúst gefst sveitarstjórn kostur á að fjalla um niðurstöður úttektarinnar og taka þær til afgreiðslu.
Ákvörðunin var samþykkt samhljóða af byggðaráði.