Fara í efni

Orkustofnun auglýsir styrki til uppsetningar á sólarsellum

Fréttir

Úthlutunarreglur fyrir sólarorkustyrki

Raforkuframleiðsla með sólarsellum beint í á raforkukerfið á Íslandi er, eins og staðan er í dag, engan vegin fýsileg. Ef notendur setja hinsvegar upp sellur til að draga úr eigin notkun má segja að ávinningur þrefaldist enda sparar notandinn þá kaup á raforku, flutningi og sköttum.

Um er að ræða samkeppnissjóð með takmarkað fjármagn. Við val á umsóknum er horft til verkefna þar sem notkun og framleiðslugeta fara hvað best saman. Styrkurinn nemur aldrei meira en 50% af efniskostnaði. Styrkurinn er greiddur út eftir á, út frá þeim reikningum sem umsækjandi leggur fram. Ekki verða styrkt verkefni sem þar sem framkvæmdir eru nú þegar hafnar.

Styrkjum Orkuseturs verður því einkum beint þangað sem hagsmunir notenda og ríkis eru hvað mestir. Lagt verður því áherslu á eftirfarandi 3 þætti og hafa verkefni sem falla undir þessar skilgreiningar forgang.

Utan samveitna.
Á stöðum utan samveitna þ.e. þar sem raforkuframleiðsla fer fram með dísilrafstöðvum. Hér niðurgreiðir ríkið allt að 50 kr/kWst sem gerir hagsmuni ríkis umtalsverða. Einnig draga sólarsellur úr olíunotkun og þar með losun gróðurhúsalofttegunda sem samræmist orkustefnu ríkis og skuldbindingum.

Notendur á dreifbýlistaxta.
Á stöðum þar sem notendur eru á dreifbýlistaxta. Þar eru notendur að borga hæsta raforkuverðið eða allt að 29 kr/kWst. Eins er ríkið að borga dreifbýlisframlag sem nemur að frádregnu jöfnunargjaldi um 3.5 kr/kWst. Fyrir hverja kWst sem framleidd er í dreifbýli lækkar því kostnaður ríkis sem þessu nemur.

Notendur á rafhituðum svæðum.
Á rafhituðum svæðum. Þar er raforkunotkun mikil og ríkið niðurgreiðir allan
raforkuflutning. Niðurgreiðsla á rafhitun er í kringum 10 kr/kWst í dreifbýli. Fyrir hverja kWst sem framleidd er í dreifbýli lækkar því niðurgreiðslukostnað ríkis sem þessu
nemur

 Nánari upplýsingar eru hér: https://orkustofnun.is/orkuskipti/orkusetur/solarsellustyrkir