Fara í efni

Orkusjóður auglýsir styrki til orkuskipta 2022

Fréttir

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ákveðið að auglýstir verðir styrkir til orkuskipta að upphæð 900 milljónir kr. af þeim fjárveitingum sem veittar eru til loftslagsmála í ár. Um er að ræða eina hæstu upphæð sem sjóðurinn hefur úthlutað um árabil. Styrkirnir eru liður í aðgerðum stjórnvalda í loftslagsmálum og orkuskiptum og eru styrkflokkar í samræmi við stefnu stjórnvalda um að styðja við orkuskipti á landsvísu. Áhersla er lögð á vistvæna orkunýtingu, sem og að styðja við orkuskipti í samgöngum um land allt. Áframhaldandi stuðningur er við uppbyggingu hleðslunets fyrir rafbíla.
Styrkirnir geta að hámarki numið 33% af áætluðum stofnkostnaði.

Styrkir til verkefna:
a) Bætt orkunýting, t.d. búnaður sem minnkar raforkunotkun til beinnar upphitunar í rafkyntum varmaveitum og/eða dregur úr olíunotkun.
b) Verkefni sem minnka olíunotkun í iðnaði, t.d. búnaður sem nýtir vistvæna orku í stað olíu.
c) Líf- eða rafeldsneytisframleiðsla og orkugeymslur.
d) Veittir verða styrkir sem ætlaðir eru fyrir uppsetningu hleðslu- eða áfyllingastöðva til þéttingar nets hleðslustöðva við vegakerfi, fyrir vistvæn ökutæki við gististaði, frístundasvæði, verslanir og fjölsótta ferðamannastaði.
e) Aðgerðir sem nýta vistvæna orku í haftengdri starfsemi og í siglingu til og frá höfn.

Umsóknarfrestur er til 7. maí.

Orkusjóði hefur verið falin umsjón með auglýsingu og umsýslu styrkjanna. Umsóknir skulu sendar gegnum þjónustugátt Orkustofnunar: gattin.os.is.

Nánari upplýsingar: www.orkusjodur.is

https://www.ssne.is/is/um-ssne/frettir/orkusjodur-auglysir-styrki-til-orkuskipta-fyrir-arid-2022