Fara í efni

,,Opnar skrifstofur" um allt Norðurland í nóvember

Fréttir

Í nóvember verða starfsmenn Markaðsstofu Norðurlands (MN) á ferðinni um Norðurland og verða með „opnar skrifstofur“ á nokkrum stöðum. Þangað geta allir komið sem vilja ræða málin, kynnast starfsemi MN betur eða kynna sína starfsemi fyrir MN.

Þetta er tilvalið tækifæri til að afla sér upplýsinga um hvernig koma megi betri tengslum á við ferðaskrifstofur, hvernig nýta má heimasíðu MN, myndabankann og samfélagsmiðla. Um leið er þetta tækifæri til að efla samskiptin á milli MN og samstarfsfyrirtækja, ná samtölum í persónu og skapa betri tengsl.

Þau Katrín Harðardóttir, verkefnastjóri ferðaskrifstofa og þróunar, og Rögnvaldur Már Helgason, verkefnastjóri upplýsingaþjónustu, útgáfu og almannatengsla verða fulltrúar MN.

Ekki er þörf á að skrá sig á fundina, það er sjálfsagt mál að kíkja við eftir því sem hentar.

Tímasetningar og staðsetningar:

15. nóvember

Ólafsfjörður, Tjarnarborg, kl. 15:45-16:45 og svo frá 19:00-19:45 (fyrir og eftir haustfund)

22.nóvember

Húsavík, Fosshótel (Lundey), kl. 10-11:30

Þistilfjörður, Grásteinn Guesthouse, 17-18:30

23. nóvember

Mývatnssveit, Jarðböðin (efri hæð), 10:30-12

29. nóvember

Skagafjörður, Hótel Varmahlíð, 10-11:30

Blönduós, Textílmiðstöðin, 13-14:30

Hvammstangi, Útibúið, 17-18:30