Fara í efni

Óbundnar kosningar í Langanesbyggð

Fréttir

Sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16. maí 2026.

Þar sem enginn framboðslisti barst yfirkjörstjórn Langanesbyggðar verða kosningarnar óbundnar.
Í óbundnum kosningum eru engir framboðslistar lagðir fram. Þess í stað eru allir kjósendur í sveitarfélaginu í kjöri, nema þeir sem samkvæmt lögum eru undanþegnir skyldu til að taka sæti í sveitarstjórn og hafa fyrir fram óskað eftir undanþágu.
Rétt til að skorast undan kjöri hafa þeir sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Eru ekki heilsuhraustir og hafa náð 65 ára aldri.
  • Hafa setið í sveitarstjórn í eitt kjörtímabil eða lengur.

Tilkynning um að skorast undan endurkjöri þurfti að berast yfirkjörstjórn áður en framboðsfrestur rann út.
Eftirtaldir sveitarstjórnarfulltrúar óska eftir undanþágu frá endurkjöri:

  • Halldóra Jóhanna Friðbergsdóttir
  • Gunnlaugur Steinarsson

Nánari upplýsingar um kosningarnar má finna á kosningar.is.

Yfirkjörstjórn Langanesbyggðar