Ný brunavarnaáætlun Langanesbyggðar tekur gildi
15.10.2026
Fréttir
Ný brunavarnaáætlun Slökkviliðs Langanesbyggðar hefur verið samþykkt af sveitarstjórn Langanesbyggðar og Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS). Áætlunin var samþykkt 18. september síðastliðinn og gildir til næstu fimm ára, eða á tímabilinu 2026–2031.
Brunavarnaáætlunin er mikilvægur þáttur í að tryggja öryggi íbúa og efla viðbúnað slökkviliðsins. Hún tekur meðal annars til mönnunar, búnaðar, þjálfunar og skipulags starfseminnar með það að markmiði að tryggja markviss og örugg viðbrögð við eldsvoðum og öðrum neyðartilvikum.
Nánari upplýsingar má finna í frétt HMS um brunavarnaáætlun Langanesbyggðar.