Fara í efni

Naust auglýsir eftir starfsfólki

Fréttir

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Naust auglýsir eftir starfsfólki

Starfsmanni í afleysingu

Starfið felst í umönnun aldraðra og öðrum tilfallandi störfum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi ríkisins við viðkomandi stéttafélag. Um er að ræða vaktavinnu og til langs tíma.

Á Nausti er rými fyrir 14 íbúa. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt. Viðkomandi þarf að hafa ríka samskipta- og samstarfshæfni og hafa gaman að því að umgangast eldra fólk. Gerð er krafa um heiðarleika, dugnað, stundvísi og góða framkomu. Íslenskukunnátta er nauðsynleg.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Starfsmanni í ræstingar
Starfið felst í ræstingum á Nausti. Hjúkrunarforstjóri mun skipuleggja starfið með nýjum starfsmanni og ákveða starfshlutfall í samráði við hann. Á Nausti er rými fyrir 14 íbúa. Viðkomandi þarf að hafa ríka samskipta- og samstarfshæfni og hafa gaman að því að umgangast eldra fólk. Gerð er krafa um heiðarleika, dugnað, stundvísi og góða framkomu.

Viðkomandi þarf að hefja störf 1. maí næstkomandi.

 Nánari upplýsingar gefur Sólrún Arney Siggeirsdóttir, hjúkrunarforstjóri í síma 468-1322 eða á netfangið naust@langanesbyggd.is