Mygla hefur greinst í Grunnskólanum á Þórshöfn.
Í byrjum maí vaknaði grunur um myglu í Grunnskólanum á Þórshöfn. Sá grunur var svo endanlega staðfestur nú í vikunni eftir að tekin höfðu verið sýni á þeim stöðum sem grunurinn beindist að. Alls voru tekin sýni á 19 stöðum úr veggjum og gólfum úr eftirfarandi rýmum í suðurálmu skólans: Úr bekkjastofu 8. og 9. bekkjar, bekkjarstofu 10. bekkjar (Brimnes), skiptistofu (Staðarsel), salernum og gangi. Niðurstöður sýndu að mygla greindist í 12 sýnum, öllum úr gólfum. Mygla fannst í öllum prófuðum rýmum, sem þýðir að allur austurhluti suðurálmu er mengaður.
Verið er að leita lausna við þessum vanda með því að finna bráðabirgðahúsnæði fyrir kennslu næsta vetur í stað þess rýmis þar sem myglan fannst. Ennfremur er unnið að því að meta kostnað og gera framkvæmdaáætlun um lagfæringar.
Þetta er mikið áfall fyrir alla sem koma að skólastarfi í Langanesbyggð en allt verður gert til að finna lausn og hraða málum eins og hægt er.
Öllum upplýsingum verður komið á framfæri um leið og eitthvað liggur fyrir varðandi lausn vandans.