Fara í efni

Menningarráð Eyþings auglýsir til umsóknar verkefnastyrki til menningarmála

Fundur
Menningarráð Eyþings auglýsir eftir umsóknum um styrki á grundvelli  samnings menntamálaráðuneytisins og samgönguráðuneytis við Eyþing frá 27. apríl 2007. Tilgangur styrkjanna er að efla menninga

Menningarráð Eyþings auglýsir eftir umsóknum um styrki á grundvelli  samnings menntamálaráðuneytisins og samgönguráðuneytis við Eyþing frá 27. apríl 2007. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á svæði Eyþings.

Menningarráð Eyþings hefur ákveðið að árið 2007 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:

·         Áhersla á vetrartímann (vetrarmenningu og vetrarlist)

·         Samstarf yfir vetrartímann milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað

·         Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs

·         Skapandi starf fyrir börn og unglinga

Umsóknarfrestur er til og með 31. október.  Úthlutun fer fram í nóvember.

Nánari upplýsingar....

 ásamt úthlutunarreglum má finna á heimasíðu Eyþings www.eything.is

Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Eyþings á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Eyþings www.eything.is eða hjá Menningarfulltrúa Eyþings Strandgötu  29, 3. hæð.

Allar nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi í síma 464 9935 og 862 2277  eða á netfangið menning@eything.is


Í tengslum við úthlutunina verður menningarfulltrúi með viðtalstíma á eftirtöldum stöðum.

Húsavík    11. október  kl. 9-11 á skrifstofu Norðurþings

Kópaskeri  11. október kl. 13-14 á þjónustuskrifustofu Norðurþings

Raufarhöfn  11. október kl. 15-16 á þjónustuskrifstofu Norðurþings

Langanesbyggð   12. október  kl. 13-14  á skrifstofu Langanesbyggðar Fjarðarvegi 3, Þórshöfn

Mývatnssveit   15. október  kl. 15-16  Hótel Reynihlíð

Laugum  15. október  kl. 10-11 á  skrifstofu Þingeyjarsveitar

Siglufirði  17. október kl.  13-14 á Bæjarskrifstofu Siglufjarðar

Ólafsfirði  17. október kl. 10-11 á Bæjarskrifstofu Ólafsfjarðar

Grenivík  18. október  kl. 10-11 í Gamla skólanum Grenivík

Dalvík   23. október  kl. 10-12 Ráðhúsinu Dalvík

Akureyri   22. og 23. október  kl. 13-17 á skrifstofu menningarfulltrúa Strandgötu 29, 3. hæð

Grímsey  24. október kl. 20-22 á sveitarstjórnarskrifstofu

Viðtalstímar á öðrum tímum eftir samkomulagi