Fara í efni

Málþing um byggðafestu ungs fólks á landsbyggðinni

Fréttir

HVAÐ EF ÉG VIL VERA HÉR

Er yfirskrift málþings sem Nýheimar þekkingarsetur stendur fyrir dagana 23. og 24. september nk. á Höfn í Hornafirði.
Umfjöllunarefni málþingsins er ungt fólk, byggðafesta þeirra og framtíð á landsbyggðinni. Á málþinginu verður sjónum beint að mikilvægu hlutverki ungs fólks þegar kemur að þróun og eflingu byggða. Tilgangur málþingsins er að skapa vettvang fyrir umræðu og miðlun þekkingar og reynslu hvað varðar þær áskoranir og tækifæri sem blasa við í tengslum við búsetuval, atvinnu- og byggðaþróun og samfélagsþátttöku ungs fólks á landsbyggðinni.
Frummælendur á fyrri degi málþingsins verða Eva Mærsk, Lotta Svensson og Hugrún Harpa Reynisdóttir. Lotta Svensson hefur um árabil rannsakað stöðu og viðhorf ungs fólks á landsbyggðinni í Svíþjóð og Eva Mærsk hefur undanfarin ár unnið að rannsóknum á þessu sviði í Danmörku. Hugrún Harpa Reynisdóttir er forstöðumaður Nýheima þekkingarseturs og kom að stofnun HeimaHafnar.
HeimaHöfn, þróunarverkefni Nýheima þekkingarseturs og Sveitarfélagsins Hornafjarðar, verður kynnt. Verkefnið miðar að því að styrkja samkeppnishæfni og aðdráttarafl sveitarfélagsins sem framtíðarbúsetukost. Með ólíkum verkþáttum er unnið markvisst að því að stuðla að jákvæðri upplifun og viðhorfi ungmenna til framtíðarinnar í Sveitarfélaginu Hornafirði og efla tengsl þeirra við samfélagið. Fulltrúum sveitarfélaga víðsvegar af landsbyggðinni er boðið til málþingsins og mun dagskrá þess miða að því að skapa tækifæri til samtals og miðlunar þekkingar á milli þátttakenda um málefni ungs fólks og byggðanna.