Fara í efni

Makrílvertíð hafin á Þórshöfn

Fréttir
Mynd: Sigurður VE
Mynd: Sigurður VE

Mikið líf er nú í uppsjávarvinnslu Ísfélags Vestmannaeyja á Þórshöfn og margir sem komið hafa til vinnu síðustu daga. Vinnsla úr fyrsta makrílfarmi sumarsins úr Sigurði VE hófst í gærmorgun og von er á Heimaey VE á morgun. Unnið er á vöktum allan sólarhringinn og vonast er til að vaktavinna verði út októbermánuð þar sem makríll og síld verða unnin. Makríllinn veiðist nú í síldarsmugunni norðan við sjötugustu breiddargráðu og því liggur Þórshöfn vel við landfræðilega miðað við marga aðra staði.