Leikskólinn Barnaból auglýsir eftir matráði í móttökueldhús og ræstingu
Við leitum að metnaðarfullum og skipulögðum einstaklingi í 100% stöðu matráðs í móttökueldhúsi
ásamt ræstingu. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni við móttöku og undirbúning máltíða ásamt
skipulagningu og framkvæmd daglegrar ræstingar. Viðkomandi þarf helst að geta hafið störf 10. ágúst.
Barnaból er tveggja deilda leikskóli, með um 22 börn. Frábær vinnustaður þar sem hæfileikar allra fá
notið sín.
Sækja má um rafrænt hér eða með því að senda umsókn á netfangið halldoraf@langanesbyggd.is
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
• Færni í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Frumkvæði í starfi og sveigjanleiki
• Snyrtimennska og stundvísi
• Góð íslenskukunnátta
Við hvetjum alla áhugasama til að sækja um, óháð kyni.
Umsóknarfrestur er til og með 14. júní 2026.
Halldóra Jóhanna Friðbergsdóttir
Skólastjóri leikskólans Barnabóls
https://www.bbol.is/
Sími 468-1303 eða 862-4371
Netfang: halldoraf@langanesbyggd.is