Fara í efni

Leikskólinn Barnaból á Þórshöfn auglýsir eftir kennara til starfa

Fréttir

Við óskum eftir áhugasömum kennara sem er skapandi í starfi og hefur mikinn áhuga á fjölbreyttum kennsluháttum og skólaþróun.

Barnaból er tveggja deilda leikskóli, með um 25 börn. Frábær vinnustaður þar sem hæfileikar allra fá notið sín. Til greina kemur að ráða umsækjanda með aðra uppeldismenntun eða starfsmann leikskóla ef ekki fæst leikskólakennari.

Sækja má um rafrænt hér eða með því að senda umsókn á netfangið halldoraf@langanesbyggd.is

Menntunar- og hæfnikröfur:
• Leyfisbréf kennara
• Færni í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Frumkvæði í starfi og sveigjanleiki
• Áhugi og hæfni til að starfa í teymisvinnu
• Snyrtimennska og stundvísi
• Góð íslenskukunnátta

Halldóra Jóhanna Friðbergsdóttir
Skólastjóri leikskólans Barnabóls
Sími 468-1303 eða 862-4371
Netfang halldoraf@langanesbyggd.is

Umsóknarfrestur er til og með 28.maí 2023 og skal með umsóknum fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.