Fara í efni

Laust starf skólaliða við Grunnskólann á Þórshöfn

Fréttir

Grunnskólinn á Þórshöfn auglýsir eftir skólaliða í 100% starf fyrir skólaárið 2025-2026. Um er að ræða fjölbreytt starf sem felur í sér daglega ræstingu, frímínútnagæslu og vinnu í frístund.

Vinnutími er frá klukkan 8:00 til 16:00 alla virka daga. Vinna í frístund er frá klukkan 13:00 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga. Stytting vinnuvikunnar er tekin á föstudögum, nema um annað sé samið.

Við leitum að einstaklingi með góða samskiptahæfni, áreiðanleika og jákvætt viðhorf gagnvart börnum og unglingum. Mikilvægt er að viðkomandi sé tilbúinn að taka virkan þátt í uppbyggilegu skólastarfi og stuðla að öryggi og vellíðan nemenda.

Sjá nánari starfslýsingu hér: starfslysing-skolalidi.pdf

Umsóknarfrestur er til 8. júlí 2025. Ráðið er í stöðuna frá 15. ágúst 2025 til 4. júní 2026. Nánari upplýsingar og umsóknir skal senda á netfangið hilma@thorshafnarskoli.is.