Fara í efni

Lausar stöður til umsóknar fyrir skólaveturinn 2023-2024

Fréttir

Við óskum eftir áhugasömum kennurum sem eru skapandi í starfi og hafa mikinn áhuga á fjölbreyttum kennsluháttum og skólaþróun.

Menntunar- og hæfniskröfur:

*Leyfisbréf kennara
* Færni í mannlegum samskiptum
* Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
* Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
* Áhugi og hæfni til að starfa í teymisvinnu
* Góð íslenskukunnátta

Í boði eru fjölbreytt viðfangsefni, þar sem hæfileikar og frumkvæði kennarans fá notið sín.

Okkur vantar kennara í íþróttum, list- og verkgreinum, heimilisfræði og raungreinum, einnig vantar umsjónarkennara í samkennslu hjá 1. og 2.bekk og laus er til umsóknar 50% staða í stoðkennslu.
Ráðið er í stöðurnar frá 1.ágúst 2023.

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu skólans, www.grunnskolinn.com 
Umsókn um starf skal senda á netfangið hilma@thorshafnarskoli.is 

Hilma Steinarsdóttir
Skólastjóri Grunnskólans á Þórshöfn
Sími 468-1164
Netfang hilma@thorshafnarskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 13. mars 2023 og skal með umsóknum fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.