Lausar lóðir í Langanesbyggð
03.03.2026
Fréttir
Farið er að fækka þeim íbúðahúsalóðum sem eru til við tilbúnar götur. Sveitarstjórn ákvað á sínum tíma að fella niður byggingaleyfisgjöld, að undanteknum tengigjöldum við slíkar lóðir.
Nú eru lausar 4 minni lóðir við Langanesveg 17-19 og ein lóð við Fjarðarveg 21.
Sjá hér: https://www.langanesbyggd.is/is/thjonusta/lausar-lodir
Auk þessara íbúðarhúsalóða er ein laus lóð á fyrir atvinnustarfsemi á athafnasvæði við Markholt.
Sveitarstjóri