Fara í efni

Langanesbyggð auglýsir leyfi til refaveiða

Fréttir

Langanesbyggð auglýsir leyfi til refaveiða á neðangreindum svæðum. Umsóknir um svæði ásamt nafni á refaskyttu(m) skal skilað á skrifstofu Langanesbyggðar, Langanesvegi 2 fyrir miðvikudaginn 20, apríl nk.

SVÆÐI

Svæði 1  Frá Fonti að Brimnesá
Svæði 2  Utan Brekknaheiði og út fyrir Naddamúla
Svæði 3  Innan jarðanna Fells og Gunnólfsvíkur 1 og 2, Fellsheiði
Svæði 4  Brekknaheiði
Svæði 5  Tunguselsheiði
Svæði 6  Tunguselsheiði frá Finnafjarðará í norðri og að sveitarfélagamörkum að undanskilinni Viðvík.
Svæði 7  Viðvík

Ef fleiri en einn sækja um ákveðið svæði verður dregið úr innsendum umsóknum. Gerður verður samningur við refaskyttur til þriggja ára í senn um refaveiðar á viðkomandi svæði.

Sveitarstjóri