Fara í efni

Gjaldkeri og launafulltrúi - umsóknarfrestur framlengdur

Fréttir

Langanesbyggð auglýsir eftir gjaldkera og launafulltrúa í 100% starf á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2

Starfssvið:

  • Greiðsla reikninga
  • Aðstoð við launaútreikning
  • Skráning reikninga
  • Skjölun og skjalavistun
  • Símsvörun og móttaka 
  • Önnur tilfallandi störf sem starfsmanni kunna að vera falin

Hæfniskröfur:

  • Menntun sem hæfir starfslýsingu
  • Góð tölvukunnátta
  • Viðkomandi þarf að vera talnaglöggur
  • Heiðarleiki, stundvísi og áreiðanleiki
  • Góðir samstarfseiginleikar

Í boði er góð vinnuaðstaða á samheldnum vinnustað. Viðkomandi starfsmaður heyrir undir skrifstofustjóra. Launakjör samkvæmt kjarasamningi sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. 
Upplýsingar um starfið veitir Bjarnheiður Jónsdóttir skrifstofustjóri bjarnheidur.jonsdottir@langanesbyggd.is og Björn S. Lárusson sveitarstjóri bjorn@langanesbyggd.is og í síma 468 1220
Umsóknarfrestur er til og með 7. október. 

Umsóknir skal senda til sveitarstjóra - bjorn@langanesbyggd.is merkt: Umsókn um starf.