Fara í efni

Kynning á drögum á deiliskipulagi Hafnartanga á Bakkafirði

Fréttir

Byggðaráð Langanesbyggðar samþykkti á fundi sínum þann 13. ágúst 2020 að kynna skipulagsdrög í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Drög að deiliskipulagi fyrir Hafnartanga á Bakkafirði liggja frammi til kynningar og eru aðgengileg á skrifstofum sveitarfélagsins og á heimasíðunni www.langanesbyggd.is. Íbúar og hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér skipulagsdrögin.

Helstu viðfangsefni deiliskipulagsins eru:

-              skilgreining á lóðarmörkum
-              aðkoma að svæðinu og bílastæði
-              göngustígar um svæðið
-              1 ný lóð og byggingarreitur fyrir salernisaðstöðu
-              svæði fyrir náttúrulaug og útsýnispall
-              dvalarsvæði, ásýnd svæðisins, gróður og lýsing

Hægt verður að koma ábendingum á framfæri skriflega við skrifstofu eða á netfangið skipulag@langanesbyggd.is til mánudagsins 24. ágúst 2020.

Sveitarstjóri Langanesbyggðar

Langanesbyggð, skipulag

Fjarðarvegi 3, 680 Þórshöfn

Netfang skipulag@langanesbyggd.is

Hægt er að skoða skipulagsdrögin hér