Íbúðir til leigu
Brák íbúðafélag hyggur á byggingu leiguíbúða við Miðholt 20-26 á Þórshöfn. Þar verða tvær tveggja herbergja íbúðir til leigu og tvær þriggja herbergja íbúðir. Íbúðirnar eru fyrst og fremst ætlaðar tekjulágum sem ganga fyrir en öllum er frjálst að sækja um íbúð. Gert er ráð fyrir að íbúðirnar verði tilbúnar um eða eftir næstu áramót.
Ennfremur er til leigu frá og með 1 júlí ein þriggja herbergja íbúð í raðhúsinu við Miðholt 21-27.
Eiginhandarumsóknum skal skilað á skrifstofu sveitarfélagsins þar sem fram koma upplýsingar um fjölskyldustærð og aðstæður umsækjenda á húsnæðismarkaði. Umsóknum verður komið á framfæri við íbúðafélagið Brák sem tekur ákvörðun um leigutaka. Íbúðafélagið Brák mun kalla eftir frekari upplýsingum þegar að úthlutun kemur.
Íbúðafélagið Brák.