Fara í efni

Íbúaþing á Bakkafirði 30. – 31. mars

Fréttir

Helgina 30. – 31. mars er íbúum, fjarbúum og öðrum hagsmunaaðilum samfélagsins við Bakkaflóa boðið til íbúaþings. Þingið markar upphaf að samtali við íbúa í verkefni Byggðastofnunar Brothættum byggðum. Verkefnið er samstarfsverkefni íbúa á Bakkafirði og nærsveitum, Langanesbyggðar, Eyþings, Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga og Byggðastofnunar. Fulltrúar þessara aðila skipa verkefnisstjórn.

Íbúaþingið er haldið til að vera verkefnisstjórninni og íbúum veganesti fyrir byggðaþróunarverkefni á Bakkafirði sem standa mun í allt að fimm ár og eru skilaboð og áherslur íbúa þungamiðja vinnunnar.

Þingið stendur í tvo daga og er ekki fyrirfram mótuð dagskrá heldur geta allir viðstaddir stungið upp á umræðuefnum sem síðan eru rædd í smærri hópum. Aðferðin kallast Opið rými, eða Open Space á ensku. Aðferðin á sér rúmlega 30 ára sögu og hefur gefist vel á íbúaþingum sem þessum. Umsjón með íbúaþinginu hefur Sigurborg Kr. Hannesdóttir hjá ILDI.

Dagskráin stendur frá kl. 11 til  kl. 16 á laugardeginum 30. mars og kl. 11 – 15, sunnudaginn 31. mars. Að þingi loknu er boðið upp á kaffiveitingar og meðan á þinginu stendur verður séð til þess að allir hafi nóg að bíta og brenna. Ekki er nauðsynlegt að vera alla helgina heldur er hægt að taka þátt í skemmri tíma. Íbúaþingið fer fram í skólahúsnæðinu á Bakkafirði.

Íbúar og aðrir sem tengjast Bakkafirði og bera hag byggðarlagsins fyrir brjósti eru hvattir til að velta fyrir sé umræðuefnum og fjölmenna til íbúaþings í lok mars.