Fara í efni

Íbúafundur um skipulagsmál í Langanesbyggð

Fréttir
Miðvikudaginn 7. nóvember verður haldinn almennur kynningarfundur um tillögur að deiliskipulagi hesthúsahverfis við Þórshöfn, byggð miðsvæðis við Bakkaveg og Vesturveg og tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Langanesbyggðar 2007-2027

Miðvikudaginn 7. nóvember verður haldinn almennur kynningarfundur um tillögur að deiliskipulagi hesthúsahverfis við Þórshöfn, byggð miðsvæðis við Bakkaveg og Vesturveg og tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Langanesbyggðar 2007-2027.

Á fundinum verða skipulagstillögur kynntar fyrir íbúum og fyrirspurnum svarað. Í framhaldi verða tillögurnar teknar til afgreiðslu í sveitarstjórn og þá auglýstar í samræmi við ákvæði skipulagslaga.

Fundurinn verður haldinn í Þórsveri á Þórshöfn, miðvikudaginn 7. nóvember n.k. klukkan 17:00.