Fara í efni

Íbúafundur um breytingar á skipulagi hafnarinnar á Þórshöfn

Fréttir

Undanfarið hefur EFLA unnið að tillögu að breytingum á skipulagi hafnarinnar á Þórshöfn. Til að kynna frumtillögur verður efnt til íbúafundar þriðjudaginn 19. mars kl. 16:00 í Þórsveri. Anna Katrín Svavarsdóttir frá EFLU mun kynna tillögurnar og verða fyrir svörum varðandi tillöguna.
Ennfremur verða fulltrúar í sveitarstjórn, fulltrúar í skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarnefnd á fundinum.
Íbúar eru hvattir til að mæta og kynna sér tillögurnar.

Björn S. Lárusson, sveitarstjóri