Fara í efni

Íbúafundir um mögulega sameiningu Langanesbyggðar og Svalbarðshrepps

Fréttir

Miðvikudaginn 6. október verða haldnir íbúafundir í báðum sveitarfélögunum, um mögulega sameiningu sveitarfélaganna, sem hér segir:

Í Svalbarðsskóla í Svalbarðshreppi kl. 17 – 19
Í Þórsveri í Langanesbyggð kl. 20 – 22

Róbert Ragnarsson ráðgjafi sveitarstjórnanna mun mæta á fundina og svara fyrirspurnum varðandi fundarefni.

Fundarefni:
1. Fjárhagsleg úttekt á stöðu sveitarfélaganna og á sameiginlegu sveitarfélagi.
2. Tillaga og umræða um meðferð landeigna sveitarfélaganna.
3. Hugsanlegt sameiningarferli.

Fundinum frá Svalbarðhreppi verður streymt á Facebooksíðu Svalbarðshrepps en tengill verður settur á heimasíðu Langanesbyggðar þar sem íbúar geta fylgst með fundinum í Þórsveri á Þórshöfn. Samráð við íbúa fer m.a. fram í gegnum samráðssíðuna www.menti.com , en einnig verður boðið upp á spurningar og ábendingar í fundarsal.

 Samráðsnefnd.