Fara í efni

Hvað ætlar þú að skapa í sumar? Skapandi sumarstörf í Langanesbyggð

Fréttir

Ert þú á aldrinum 18–24 ára með lögheimili í Langanesbyggð? Lumar þú á skapandi hugmynd sem þig langar að þróa í sumar? Langanesbyggð býður upp á styrk fyrir ungt fólk sem vill nýta hluta af sumrinu í að vinna að eigin skapandi verkefni. Hugmyndin þín getur verið stór eða smá. Það gæti verið eitthvað sem þú hefur nú þegar gaman af eða eitthvað sem þig hefur alltaf langað til að prófa.

Verkefni gætu til dæmis verið:
* listir • ljósmyndun • tónlist • kvikmyndagerð • ritstörf • handverk • hönnun • matagerð • samfélagshugmyndir
– eða eitthvað allt annað. Vertu skapandi!

Þetta er ekki hefðbundið sumarstarf.
Þess í stað fá þátttakendur styrk og geta skipulagt tíma sinn sjálfir á meðan þeir vinna að verkefninu.
Yfir sumarið munu þátttakendur einnig:
• fá leiðsögn frá leiðbeinanda
• hittast vikulega með hópnum til að deila hugmyndum og framvindu
• kynna/sýna verkefnið sitt á Kátum dögum

Kynningarfundur
Áður en opnað verður fyrir umsóknir höldum við stuttan kynningarfund fyrir alla áhugasama sem eru forvitnir og vilja vita meira um verkefnið. Á fundinum munum við útskýra hvernig styrkurinn virkar, hvers konar verkefni eru möguleg og hvernig á að sækja um.
Þú þarft ekki að vera með fullmótaða hugmynd – Áhugi og metnaður eru nóg. Þátttakendur verða valdir í gegnum einfalt umsóknarferli.

Kynningarfundur verður haldinn 24. mars kl. 15:00 í Kistunni.
Möguleiki er að vera með á Teams fyrir þá sem eiga ekki heimangengt.